Ákvörðun hluthafafundar um breytingu á samþykktum og ákvörðun um skilyrta arðgreiðslu

Ákvörðun hluthafafundar um breytingu á samþykktum og ákvörðun um skilyrta arðgreiðslu

Ákvörðun hluthafafundar um breytingu á samþykktum og ákvörðun um skilyrta arðgreiðslu - mynd

Á hluthafafundi Arion banka hf. sem fram fór í dag 12. febrúar 2018 var ákveðið að taka upp í samþykktir bankans tímabundna heimild til handa stjórn bankans til að kaupa til baka hlutabréf útgefin af bankanum. Jafnframt samþykkti hluthafafundur tillögu stjórnar bankans um skilyrta arðgreiðslu til hluthafa bankans.

Arðgreiðsla og kaup á eigin bréfum sem samþykkt var er að fullu í samræmi við langtímamarkmiði Arion banka um að minnka umfram eigið fé bankans. Að framkvæmd lokinni lækkar eiginfjárhlutfall bankans um ríflega 3% en er engu að síður vel umfram kröfur FME og það sem bankinn telur hæfilegt.

Lesa má tilkynningu bankans til kauphallar hér.