Arion banki breytir vöxtum
Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast þann 1. júní næstkomandi.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Óverðtryggð íbúðalán
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,10 prósentustig og verða 3,54%
- Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,15 prósentustig og verða 4,35%
Verðtryggð íbúðalán
- Verðtryggðir íbúðalánavextir eru óbreyttir
Kjörvextir
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,10 prósentustig og verða 4,70%
- Verðtryggði kjörvextir eru óbreyttir
Bílalán
- Kjörvextir bílalána hækka um 0,10 prósentustig og verða 5,10%
Annað
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,25 prósentustig
- Vextir helstu sparnaðarreikninga hækka um 0,10-0,25 prósentustig.
Vaxtabreytingar útlána taka að miklu leyti mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.