Arion banki kynnir nýja fagfjárfestasíðu
Arion banki hefur sett í loftið nýjan upplýsingavef með heildstæðu yfirliti um þjónustu bankans við fagfjárfesta.
Arion banki býður fagfjárfestum upp á faglega og sérsniðna eignastýringu sem tekur mið af þörfum lífeyrissjóða, tryggingarfélaga, stofnana og annarra fagfjárfesta. Þjónustan byggist á skipulögðum vinnubrögðum þar sem fjárfestingarstefna, markmið og vikmörk eru skilgreind í samráði við viðskiptavini. Áhersla er lögð á virka eignastýringu þar sem samsetning eignasafna er endurskoðuð reglulega í takt við markaðsaðstæður og þróun innan og á milli eignaflokka.
Viðskiptavinir njóta framúrskarandi þjónustu sem felur í sér regluleg samskipti, greiningu á markaðsþróun og aðstoð við mótun stefnu um ábyrgar fjárfestingar og hluthafastefnu. Arion banki býður einnig sérhæfða rekstrarþjónustu fyrir lífeyrissjóði sem vilja útvista starfsemi sinni, að hluta til eða í heild. Þjónustan er mótuð í nánu samráði við hvern sjóð með það að markmiði að hámarka skilvirkni, lágmarka rekstraráhættu og styðja við langtímaárangur.
Stafrænar lausnir eru lykilþáttur í þjónustunni. Sjóðfélagar hafa aðgang að upplýsingum um lífeyrismál sín í Arion appinu og launagreiðendur nýta sér einfalda ferla í gegnum sjálfvirknivæðingu og endurhönnun vinnulags. Með því er stuðlað að aukinni hagkvæmni og öryggi í rekstri sjóða.
Fagfjárfestar hjá Arion banka hafa jafnframt aðgang að fjölbreyttu úrvali innlendra og erlendra sjóða í samstarfi við leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki. Samstarfið tryggir hagstæð kjör og sértæka þjónustu sem styður við fjárfestingarákvarðanir til lengri tíma.
Kynntu þér nýju síðuna og fáðu nánari upplýsingar um þjónustu við fagfjárfesta.