Ný fjármögnunarleið fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki kynnt á fundi Samtaka sprotafyrirtækja
Arion banki í samstarfi við European Investment Fund, EIF, býður nú fjármögnun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem hyggjast innleiða nýjungar í sinni starfsemi hvort sem um er að ræða innleiðingu á nýjum vörum, ferlum eða þjónustu.
Tilgangur samstarfsins er að veita fyrirtækjum aðgang að fjármagni á lægri vöxtum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og með því styðja við nýsköpun, örva atvinnulíf, rannsóknir og þróun. Nánari upplýsingar um fjármögnunina má finna hér.
Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunarmála hjá Arion banka, og Jónas Páll Jakobsson, frá viðskiptabankasviði, kynntu nýverið þessa nýju fjármögnunarleið á fundi Samtaka sprotafyrirtækja. Um 60 manns voru á fundinum og sköpuðust góðar umræður í kjölfar kynningarinnar.