16. apríl 2015
Nýr útibússtjóri Arion banka á Sauðárkróki
Magnús Barðdal Reynisson hefur tekið við starfi útibússtjóra Arion banka á Sauðárkróki.
Magnús er 29 ára að aldri, brautskráður með BSc próf í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og með ML próf í lögfræði frá sama skóla. Hann hefur réttindi sem héraðsdómslögmaður og hefur starfað á lögfræðisviði Íbúðalánasjóðs frá árinu 2010.
Magnús er búsettur á Sauðárkróki, kvæntur Önnu Hlín Jónsdóttur, íþróttafræðingi og eiga þau tvö börn.