04. september 2018
Verum plastlaus í september
Árvekniátakið Plastlaus september fer nú fram í annað sinn. Tilgangur átaksins er að vekja neytendur til umhugsunar um skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti.
Arion banki er stoltur styrktaraðili átaksins annað árið í röð en bankinn hefur stigið ýmis skref með það að markmiði að draga úr plastnotkun og vernda umhverfið. Nánari upplýsingar um umhverfismál Arion banka má finna hér.
Leggjum okkur fram og verum #plastlaus í september.