Stytta af Ingibjörgu H. Bjarnason afhjúpuð 19. júní
Ingibjörg H. Bjarnason var fyrsta konan sem tók sæti á Alþingi. Hún sat á alþingi 1922-1930 fyrir sérstakan kvennalista sem spratt upp úr kvenréttindabaráttu þessa tíma. Áður hafði Ingibjörg um árabil verið skólastjóri Kvennaskólans í Reykjavík. Föstudaginn 19. júní verður afhjúpuð stytta af Ingibjörgu. Arion banki, ásamt öðrum fjármálafyrirtækjum, stóð straum af kostnaði við gerð styttunnar.
Styttan af Ingibjörgu er fyrsta mannhæðar háa styttan af konu sem rís í Reykjavík. Er vel við hæfi að hún sé af fyrstu konunni sem sat á Alþingi og sé afhjúpuð á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Styttan af Ingibjörgu er unnin af Ragnhildi Stefánsdóttur myndhöggvara.
Styttan verður afhjúpuð um klukkan kl. 16.20 í tengslum við afhöfn á Austurvelli og við Alþingishúsið sem hefst um kl. 16. Sent verður beint út frá athöfninni í Sjónvarpinu.
Ingibjörg H. Bjarnason var varaforseti efri deildar Alþingis um hríð. Hún var meðal annars í forystu kvenna sem sömdu frumvarp sem var flutt á Alþingi árið 1915 um þörfina fyrir byggingu Landspítala og var formaður Landspítalasjóðs Íslands. Landspítalasjóðurinn hittist enn þann dag í dag í hverjum mánuði til fundarhalda á heimili Ingibjargar í Kvennaskólanum í Reykjavík í virðingarskyni við frumkvöðlastarf hennar við stofnun sjóðsins.