Erlendum seðlum fækkað í útibúum Arion banka
Frá og með 15. mars 2024 mun Arion banki aðeins taka við og selja erlenda seðla í fjórum myntum; breskum pundum (GBP), bandaríkjadollar (USD), pólskum zloty (PLN) og evrum (EUR).
Þannig munum við hætta að selja og taka við seðlum í eftirfarandi myntum; áströlskum (AUD) og kanadískum (CAD) dollurum, dönskum (DKK), sænskum (SEK) og norskum (NOK) krónum, svissneskum frönkum (CHF) og japönskum jenum (JPY).
Ástæða breytinganna er sú að gjaldeyrissala hefur farið mjög minnkandi undanfarin ár, fyrst og fremst með tilkomu tækninýjunga en einnig vegna þrengri skorða vegna peningaþvættisreglna hérlendis sem og erlendis.
Þá hefur nær öll gjaldeyrissala síðustu missera farið fram í þeim fjórum myntum sem bankinn mun áfram bjóða upp á, þ.e. USD, GBP, PLN og EUR.
Þau sem eiga seðla í þeim myntum sem bankinn hyggst hætta að taka við og vilja skipta yfir í íslenskar krónur í útibúi Arion þurfa að gera það í síðasta lagi 15. mars 2024. Nauðsynlegt er að eiga innlánsreikning hjá bankanum og hafa lokið áreiðanleikakönnun.
Ofangreint felur ekki í sér nokkra breytingu á úrvali gjaldeyrisreikninga bankans þótt ekki verði lengur tekið við fyrrnefndum seðlum.