Nýtt framboð íbúðalána Arion banka

Nýtt framboð íbúðalána Arion banka

Nýtt framboð íbúðalána Arion banka - mynd

Arion banki hefur síðustu vikur endurskoðað skilmála íbúðalána sinna vegna þeirrar óvissu sem skapaðist á íbúðalánamarkaði í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar í máli gegn Íslandsbanka. Við bíðum jafnframt niðurstöðu Hæstaréttar í máli sem varðar verðtryggða skilmála bankans en niðurstaða þess máls mun að öllum líkindum liggja fyrir um miðjan desember.

Við bjóðum nú viðskiptavinum okkar tvenns konar íbúðalán.

Óverðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja ára – lánstími allt að 40 ár

Viðskiptavinum býðst að taka íbúðalán með óverðtryggðum vöxtum sem eru fastir til þriggja ára. Lánstími getur verið allt að 40 ár. Á þriðja ári fastvaxtatímabilsins og út lánstímann verður hægt að óska eftir endurfjármögnun án uppgreiðslugjalds og geta viðskiptavinir þá valið á milli þeirra lánakosta sem í boði verða á þeim tíma. Verði lánið ekki endurfjármagnað fyrir lok fastvaxtatímabilsins taka við þeir breytilegu vextir bankans sem í boði eru á þeim tíma að viðbættu föstu vaxtaálagi sem tilgreint er í skilmálum lánsins.

Verðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja eða fimm ára – lánstími allt að 30 ár

Viðskiptavinum býðst jafnframt að taka íbúðalán með verðtryggðum vöxtum til allt að 30 ára þar sem hægt verður að velja um fasta vexti til þriggja eða fimm ára. Á lokaári fastvaxtatímabilsins og út lánstímann verður hægt að óska eftir endurfjármögnun án uppgreiðslugjalds og geta viðskiptavinir þá valið á milli þeirra lánakosta sem í boði verða á þeim tíma. Verði lánið hins vegar ekki endurfjármagnað fyrir lok fastvaxtatímabilsins taka við hærri fastir vextir út lánstímann sem tilgreindir eru í skilmálum lánsins.

Hvers vegna vaxtaálag eða hærri vextir að fastvaxtatímabili liðnu?

Hægt verður að óska eftir endurfjármögnun á lokaári fastvaxtatímabilsins og út lánstímann án uppgreiðslugjalds. Mun bankinn hafa samband við viðskiptavini áður en fastvaxtatímabilinu lýkur til að ræða þá kosti sem í boði eru. Á síðustu árum hafa viðskiptavinir Arion banka að meðaltali endurfjármagnað sín íbúðalán að þremur til fimm árum liðnum.

Fyrirfram ákveðin hækkun vaxta eftir að fastvaxtatímabili lýkur skapar ákveðinn fyrirsjáanleika fyrir lántakendur og er nauðsynleg til að verja bankann fyrir fjárhagslegri áhættu sem myndast ef lántaki endurfjármagnar ekki lánið að tímabilinu liðinu. Lánum til 30 eða 40 ára fylgir annars konar áhætta fyrir bankann en lánum til þriggja eða fimm ára því á nokkrum áratugum getur margt gerst sem hefur áhrif á fjármögnunarkostnað bankans. Stýrivextir eða annars konar vaxtaviðmið ein og sér verja ekki slíka áhættu.

Markmiðið að bjóða sem hagstæðust kjör í upphafi og eins viðráðanlega greiðslubyrði og kostur er

Þannig teljum við að álag á vexti eða vaxtahækkun að fastvaxtatímabili liðnu bestu leiðina í ljósi núverandi óvissu á íbúðalánamarkaði. Lánaformin tvö eru sett fram með það að markmiði að bjóða viðskiptavinum upp á sem hagstæðust kjör í upphafi og greiðslubyrði sem er eins viðráðanleg og kostur er miðað við þær skorður sem núverandi lagaóvissa setur á meðan beðið er niðurstöðu fleiri mála hjá Hæstarétti.

Nánari upplýsingar um íbúðalán Arion banka má finna hér.