11. febrúar 2019
Fræðslufundur um fjárfestingarleiðir og ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins
Á fundinum segir Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður Eignastýringar fagfjárfesta Arion banka, frá ávöxtun og fjárfestingarleiðum Frjálsa lífeyrissjóðsins. Fjallað verður m.a fjárfestingarstefnu, fjárfestingaleiðir og flutningur úr og í ævilínu.
Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19, fimmtudaginn 28. febrúar kl. 17:30. Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og eru kaffiveitingar í boði.
Allir velkomnir.