Skráningu á framhaldsaðalfund Arion banka lýkur kl. 16:00 í dag, 13. maí 2020

Skráningu á framhaldsaðalfund Arion banka lýkur kl. 16:00 í dag, 13. maí 2020

Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19 - myndHöfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19

Boðun til framhaldsaðalfundar var birt þann 17. apríl sl. en þeir hluthafar sem hyggjast taka þátt á fundinum þurfa að óska eftir aðgangi fyrir kl. 16:00 í dag, 13. maí 2020. Opnað verður fyrir atkvæðagreiðslu kl. 12:00 á fundardag, þ.e. 14. maí en fundurinn sjálfur hefst kl. 16:00.

Leiðbeiningar um aðgangsupplýsingar og kosningu má finna hér en allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm.