Horfðu á upptökur frá morgunfundi Arion banka um horfurnar í hagkerfinu og íslenskri ferðaþjónustu

Horfðu á upptökur frá morgunfundi Arion banka um horfurnar í hagkerfinu og íslenskri ferðaþjónustu

Horfðu á upptökur frá morgunfundi Arion banka um horfurnar í hagkerfinu og íslenskri ferðaþjónustu - mynd

Þann 1. apríl síðastliðinn hélt Arion banki velheppnaðan morgunfund til að kynna nýja ferðaþjónustuúttekt greiningardeildar bankans og nýja efnahagsspá, undir yfirskriftinni Hagspá og horfur í ferðaþjónustu: Með vindinn í fangið.

„Eftir sterka viðspyrnu í kjölfar heimsfaraldursins stendur greinin á tímamótum,“ segir Lilja Sólveig Kro, hagfræðingur hjá Arion banka. „Íslensk ferðaþjónusta hefur slitið barnskónum og tímabil ævintýralegs vaxtar virðist að baki, líkt og ferðamannatölur síðustu mánaða bera með sér. Ferðamannaspá okkar dregur dám af þessari þróun, þar sem vöxtur snýst í viðhald. Við spáum lítils háttar fækkun í komum ferðamanna á þessu ári en hógværum vexti á næstu árum.“

Hér má lesa ferðaþjónustuúttektina.

Í nýrri efnahagsspá bankans kemur fram að fjárhagsleg heilsa heimila og fyrirtækja á landinu sé almennt góð, enda verðbólga að hjaðna og vextir að lækka. Í stað útflutningsdrifins hagvaxtar sé það einkaneyslan sem stígi nú fram á stóra sviðið. Helstu áskoranirnar leynist í ferðaþjónustunni.

„Niðurstaðan er 1,3% hagvöxtur í ár, en óvissan er niður á við.“ segir Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka.

Að sögn Ernu Bjargar eru ýmis ljón í veginum í íslensku atvinnulífi um þessar mundir.

„Það liggur í augum uppi að útflutningshorfur okkar hafa versnað,“ segr hún. „Ekki nóg með að ferðaþjónustan, stærsta útflutningsgrein þjóðarbúsins, eigi undir högg að sækja, heldur hefur alþjóðleg efnahagsóvissa aukist verulega að undanförnu, þróun sem gæti leitt til minni eftirspurnar eftir íslenskum útflutningi.“

Fjölbreytt erindi úr ólíkum áttum

Erindin á morgunfundinum komu úr fjölbreyttum áttum og saman veittu þau yfirgripsmikla mynd af stöðunni í íslenskri ferðaþjónustu.

Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, forstöðumaður fasteigna og innviða, hóf fundinn og hélt stutt opnunarerindi. Næst flutti Erna Björg hagspárkynningu sem bar sama heiti og viðburðurinn, „Með vindinn í fangið“. Á eftir henni steig Lilja Sólveig í pontu og flutti erindið „Höldum flughæð í gegnum ókyrrðina“ þar sem farið yfir helstu niðurstöður nýrrar ferðaþjónustuskýrslu greiningardeildar bankans.

Erindi Ernu

Erindi Lilju

Þá hlýddu gestir á þrjú innslög frá fulltrúum ferðaþjónustunnar.

Fyrstur á stokk steig Ásgeir Baldursson, forstjóri Arctic Adventures.

Erindi Ásgeirs

Næst talaði Helga María Albertsdóttir, framkvæmdastjóra Sky Lagoon.

Erindi Helgu

Síðust á svið var svo Eva Jósteinsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Centers Hotels Iceland.

Erindi Evu

Við þökkum öllum þeim sem sóttu viðburðinn og vonum að þau ykkar, sem misstuð af honum, hafið gagn af því að horfa á myndböndin.