Euromoney velur Arion banka sem besta fjárfestingarbankann á Íslandi

Euromoney velur Arion banka sem besta fjárfestingarbankann á Íslandi

Euromoney velur Arion banka sem besta fjárfestingarbankann á Íslandi - mynd

Alþjóðlega fjármálaatímaritið Euromoney hefur valið Arion banka sem besta fjárfestingarbankann á Íslandi árið 2016. Í rökstuðningi Euromoney er m.a. horft til þess að Arion banki vann á síðasta ári markvisst að uppbyggingu íslenska verðbréfamarkaðarins með skráningum Eikar, Reita og Símans á Aðallista Nasdaq Ísland. Þar kemur einnig fram að bankinn sé með góða hlutdeild í hlutabréfa-, skuldabréfa- og gjaldeyrismiðlun.

Að auki horfir Euromoney til þess að Arion banki hefur verið ötull í að aðstoða viðskiptavini við skuldabréfaútgáfu og þannig tekið virkan þátt í uppbyggingu skuldabréfamarkaðarins. Í því samhengi má nefna skuldabréfaútgáfu Landsvirkjunar, Garðabæjar, Eikar og Reita á árinu 2015.

Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs, tók við viðurkenningunni fyrir hönd Arion banka.

Það er ánægjulegt að Arion banki skuli fá þessa viðurkenningu. Það er ekki spurning í mínum huga að lykillinn að þessum árangri er gott samstarf við okkar viðskiptavini. Ég lít svo á að okkar hlutverk sé einfaldlega að styðja við okkar viðskiptavini í þeirra verkefnum og okkar markmið er að gera það vel þannig að árangur náist.