Samningur á milli ungmennafélagsins Hvatar og Arion banka endurnýjaður

Samningur á milli ungmennafélagsins Hvatar og Arion banka endurnýjaður

Hilmar Þór Hilmarsson, frá Ungmennafélaginu Hvöt, og Auðunn Steinn Sigurðsson, útibússtjóri á Blönduósi, undirrita samninginn. - myndHilmar Þór Hilmarsson, frá Ungmennafélaginu Hvöt, og Auðunn Steinn Sigurðsson, útibússtjóri á Blönduósi, undirrita samninginn.

Á dögunum undirrituðu Arion banki og Ungmennafélagið Hvöt á Blönduósi áframhaldandi samstarfssamning.

Með undirrituninni verður Arion banki því áfram einn af aðalbakhjörlum hins árlega knattspyrnumóts sem haldið er í bænum, Smábæjarleika Arion banka. Næsta sumar verður mótið haldið í fjórtánda sinn.