Fleiri starfsmenn bætast í hóp vottaðra fjármálaráðgjafa
Í gær fór fram útskrift úr námi til vottunar fjármálaráðgjafa. Alls útskrifuðust 35 starfsmenn fjármálafyrirtækja úr náminu, þar af 14 frá Arion banka. Eftir útskriftina í gær eru vottaðir fjármálaráðgjafar hjá bankanum orðnir 37 talsins.
Markmið vottunarinnar er að samræma þær kröfur sem eru gerðar til fjármálaráðgjafa og tryggja að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni í starfi. Námið spannar þætti fjármálamarkaðar og þjóðhagfræði auk lögfræði og siðfræði. Einnig fengu nemendur þjálfun í almennri ráðgjafafærni. Náminu lauk með prófum til að staðfesta færni þátttakenda.
Samtök fjármálafyrirtækja standa að verkefninu um vottun fjármálaráðgjafa ásamt efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, Samtökum starfsfólks fjármálafyrirtækja, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst.