Arion banki bakhjarl Ferðafélags Íslands

Arion banki bakhjarl Ferðafélags Íslands

Páll Eysteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands og Halldór Harðarson, markaðsstjóri Arion banka. Aftar frá vinstri eru Ólöf Sívertssen, Hjalti Björnsson og Steingerður Sigtryggsdóttir, öll frá FÍ. - myndPáll Eysteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands og Halldór Harðarson, markaðsstjóri Arion banka. Aftar frá vinstri eru Ólöf Sívertssen, Hjalti Björnsson og Steingerður Sigtryggsdóttir, öll frá FÍ.

Arion banki verður aðalsamstarfsaðili og bakhjarl Ferðafélags Íslands (FÍ) næstu þrjú árin. Þetta kemur fram í samstarfssamningi bankans og FÍ sem undirritaður var á dögunum.

Arion banki mun leggja Ferðafélagi Íslands lið til góðra verka á fjöllum, m.a. til uppbyggingar göngustíga og fjallaskála, almenningi og ferðafólki til heilla. Þá mun bankinn einnig styðja við eflingu öryggismála á fjöllum, náttúruvernd og fleiri samfélagslegra verkefna Ferðafélagsins.

Í samtali við Morgunblaðið sagði Páll Eysteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands:

„Okkur er mikið ánægjuefni að fá þennan góða bakhjarl. Við höfum á síðustu árum staðið fyrir uppbyggingu víða, svo sem á Laugaveginum þar sem framkvæmt hefur verið fyrir háar upphæðir. Þá er félagið öflugt í ýmsum lýðheilsuverkefnum; það er að fá fólk til að hreyfa sig sem gerir öllum gott. Liðsinni Arion banka í þessu er kærkomið og mikilvægt.