05. apríl 2019
Lausnir vegna tímabundins tekjumissis
Til að koma til móts við þá sem misst hafa störf sín að undanförnu hefur bankinn vakið sérstaka athygli á þeim lausnum sem eru í boði vegna tímabundins tekjumissis. Nánari upplýsingar eru aðgengilegar hér.
Meðal úrræða hjá Arion banka eru:
- Greiðsludreifing reikninga / korta
- Yfirdráttarheimild
- Skuldabréfalán til skemmri tíma
- Skilmálabreyting, lenging eða frysting lána
- Endurfjármögnun láns
Viðskiptavinir eru velkomnir til okkar í ráðgjöf þar sem farið er yfir fjármálin, staðan metin og ræddar leiðir til að leysa úr fjárhagsvandanum, hvort sem hann er til skemmri eða lengri tíma.