13. mars 2020
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19
Arion banki lækkar vexti
Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánsvextir Arion banka breytast þann 16. mars næstkomandi.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,50% og verða 4,49%
- Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,30% og verða 3,19%
- Fastir 5 ára óverðtryggðir og verðtryggðir íbúðalánavextir lækka um 0,30%
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,30% og almennir verðtryggðir kjörvextir lækka um 0,20%
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga lækka um 0,30% - 0,50%
- Vextir bílalána lækka um 0,30% - 0,50%
- Breytilegir innlánavextir bankans munu í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05% - 0,50%
Nánar má lesa um vexti Arion banka í vaxtatöflu bankans.