08. júní 2017
Vörður tekur við umsjón ferðatrygginga kreditkorta
Umsjón með ferðatryggingum kreditkorta Arion banka mun þann 1. júlí færast frá VÍS til Varðar. Engar breytingar verða gerðar á ferðatryggingum korthafa heldur tekur Vörður við öllum tryggingaskilmálum óbreyttum. Þeim korthöfum sem lenda í ferðatengdum tjónum frá og með þeim tíma er því bent á að leita aðstoðar hjá Verði í síma 514-1000 eða á vordur.is.
Arion banki er eigandi tryggingafélagsins Varðar og er breytingin liður í auknu samstarfi fyrirtækjanna með áherslu á aukið þjónustuframboð til viðskiptavina.