Arion banki breytir vöxtum verðtryggðra íbúðalána með breytilega vexti

Arion banki breytir vöxtum verðtryggðra íbúðalána með breytilega vexti

Arion banki breytir vöxtum verðtryggðra íbúðalána með breytilega vexti - mynd

Vextir verðtryggðra íbúðalána sem bera breytilega vexti lækka frá og með deginum í dag um 0,15% og verða 2,79%. Þetta á við um lán sem þegar hafa verið veitt og ný útlán.

Jafnframt hækka vextir gjaldeyrisreikninga og taka breytingarnar gildi samdægurs.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.