Arion banki valinn banki ársins á Íslandi

Arion banki valinn banki ársins á Íslandi

Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, veitir viðurkenningunni móttöku.  - myndStefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, veitir viðurkenningunni móttöku.

Tímaritið The Banker, sem gefið er út af The Financial Times, hefur valið Arion banka sem banka ársins á Íslandi árið 2015. Er þetta í annað sinn á síðastliðnum þremur árum sem Arion banki vinnur þessi virtu bankaverðlaun. Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, veitti viðurkenningunni móttöku fyrir hönd bankans.

Í rökstuðningi fyrir vali The Banker tímaritsins á Arion banka sem banka ársins kemur fram að horft hafi verið til þess að rekstur bankans hafi gengið vel og skilað mjög góðri afkomu á sama tíma og kostnaðarhlutfall bankans sé lágt. Vel þykir hafa tekist til við að byggja upp alhliða fjármálafyrirtæki og auka þátt þóknanatekna í tekjum bankans, ekki síst á sviði eignastýringar og fjárfestingarbanka-starfsemi. Þáttur dótturfélaga bankans þykir einnig markverður í þessu samhengi og þá ekki síst þáttur Stefnis, sem er í fararbroddi sjóðastýringafyrirtækja hér á landi, og Valitor sem m.a. er með vaxandi starfsemi á erlendum vettvangi og var fyrr á árinu valið til að þjónusta ApplePay í Bretlandi.

Tekið var til þess að Arion banki hefur náð góðum árangri við að lækka fjármögnunarkostnað sinn og var fyrstur íslenskra banka síðan 2008 til að gefa út skuldabréf í evrum til breiðs hóps fjárfesta fyrr á árinu. Skuldabréfið var að upphæð 300 milljónir evra og hafa viðskipti á eftirmarkaði gengið vel og álag yfir millibankavexti lækkað.

Við valið á Arion banka sem banka ársins á Íslandi var einnig horft til þess árangurs sem bankinn hefur náð með hraðþjónustu sinni, lausnum eins og netbanka, nýjum hraðbönkum og ekki síst Arion appinu, sem nýtur mikilla vinsælda. Áhersla Arion banka á að styrkja og efla nýsköpunarumhverfið á Íslandi í gegnum Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík, sem og fjárfesting bankans um milljarð króna í Eyrum Sprotum, þykir einnig eftirtekarverð.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Útnefning þessi er fyrst og fremst eftirtektarverð staðfesting á því góða starfi sem starfsfólk okkar hefur unnnið á undanförnum árum og þeim árangri sem það hefur náð. Það er ánægjulegt að Arion banki skuli fá þessa viðurkenningu nú í annað sinn frá þessu virta fagtímariti. Lykilinn að árangri er alltaf góð og árangursrík samvinna starfsfólks okkar og viðskiptavina. Okkar hlutverk er að styðja við okkar viðskiptavini í þeirra verkefnum og okkar markmið er að gera það vel þannig að árangur náist.“

Á meðfylgjandi mynd má sjá Stefán Pétursson, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Arion banka, veita viðurkenningunni móttöku.