Arion banki lækkar vexti

Arion banki lækkar vexti

Arion banki lækkar vexti - mynd

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánsvextir Arion banka breytast þann 11. febrúar.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

  • Óverðtryggðir fastir 5 ára íbúðalánavextir vextir lækka um 0,25% og verða 5,54%
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir vextir lækka um 0,20% og verða 4,99%
  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,10%
  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga lækka
  • Hvað innlán varðar þá munu breytilegir innlánsvextir bankans í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05%-0,25%

Nánar má lesa um vexti bankans í vaxtatöflu bankans.