Arion banki lækkar vexti

Arion banki lækkar vexti

Arion banki lækkar vexti - mynd

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánsvextir Arion banka breytast frá og með deginum í dag.

Vextir íbúðalána munu breytast á eftirfarandi hátt:

  • Óverðtryggðir fastir 5 ára íbúðalánavextir vextir lækka um 0,40% og verða 5,79%
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir vextir lækka um 0,20% og verða 5,78%
  • Verðtryggðir íbúðalánavextir vextir lækka um 0,10%
    • Fastir 5 ára vextir verða 3,09%
    • Breytilegir vextir verða 3,49%

Almennir kjörvextir, óverðtryggðir og verðtryggðir, munu lækka um 0,10%.

Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga lækka um allt að 0,25%.

Hvað innlán varðar þá munu breytilegir innlánsvextir bankans í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05%-0,25%.

Nánar má lesa um vexti bankans í vaxtatöflu bankans.