Arion er banki ársins að mati Euromoney
Fjármálatímaritið Euromoney hefur valið Arion sem banka ársins á Íslandi árið 2024 og sem besta stafræna banka landsins.
Í rökstuðningi sínum vísar Euromoney til forystu Arion hér á landi þegar kemur að stafrænni bankaþjónustu. Nefnir tímaritið meðal annars þær stafrænu nýjungar sem bankinn hefur kynnt til leiks síðustu misseri eins og rauntímagögn þegar kemur að verðbréfaviðskiptum, aðgerðir og yfirsýn í lífeyrismálum og fjölbreytta virkni í tengslum við kredit- og debetkort. Einnig nefnir tímaritið greiðsluþakslausn bankans fyrir þá sem eru með óverðtryggð íbúðalán og vilja tímabundið lækka greiðslubyrði íbúðalána sinna.
Að auki horfir Euromoney til aukinnar stafrænnar þjónustu fyrir fyrirtæki sem geta til að mynda átt viðskipti með hlutabréf og sjóði í bæði appi og netbanka og þess að einstaklingar sem einnig stunda fyrirtækjarekstur geta auðveldlega í appinu skipt á milli sýnar á eigin fjármál og fjármál fyrirtækisins.
Euromoney vísar jafnframt til þeirrar lánshæfismatseinkunnar sem Arion banki fékk á síðasta ári frá matsfyrirtækinu Moody‘s en þá gaf matsfyrirtækið bankanum, sem útgefanda sértryggðra skuldabréfa í evrum, einkunn sem er þremur þrepum fyrir ofan einkunn íslenska ríkisins.