Arion banki styður íslenskar tónlistarkonur

Arion banki styður íslenskar tónlistarkonur

Böðvar Guðjónsson, framkvæmdastjóri viðburða á KEX hostel, Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, varaformaður KÍTON, Lára Rúnarsdóttir, formaður KÍTÓN, og Kristín Ágústsdóttir frá Arion banka, undirrituðu samstarfssamninginn - myndBöðvar Guðjónsson, framkvæmdastjóri viðburða á KEX hostel, Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, varaformaður KÍTON, Lára Rúnarsdóttir, formaður KÍTÓN, og Kristín Ágústsdóttir frá Arion banka, undirrituðu samstarfssamninginn

Nýlega undirrituðu Arion banki, KÍTÓN - félag kvenna í tónlist og Kex Hostel samstarfssamning. Mánaðarlega verða haldnir tónleikar út árið 2016 á Kex Hostel þar íslenskar tónlistarkonur koma fram og láta ljós sitt skína. Nú þegar hafa verið haldnir tveir vel heppnaðir tónleikar og 20. júlí verða þriðju tónleikarnir haldnir en þá stíga Boogie Trouble og Soffía Björg á stokk.

Með samstarfssamningnum styður Arion banki við íslenskar tónlistarkonur en tilgangur KÍTÓN er að skapa jákvæða umræðu, samstöðu og samstarfsvettvang meðal kvenna í tónlist.

Mynd: Böðvar Guðjónsson, framkvæmdastjóri viðburða á KEX hostel, Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, varaformaður KÍTON, Lára Rúnarsdóttir, formaður KÍTÓN, og Kristín Ágústsdóttir frá Arion banka, undirrituðu samstarfssamninginn.