Hlutabréf Arion banka tekin til viðskipta
Í dag klukkan 9:30 voru hlutabréf í Arion banka tekin til viðskipta hjá Nasdaq Iceland. Samtímis voru SDR (Swedish Depository Receipts) tekin til viðskipta hjá Nasdaq Stockholm.
Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka hringdi inn fyrstu viðskiptin hjá Nasdaq Iceland í athöfn í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni. Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, bauð félagið velkomið á Aðalmarkað.
Í Svíþjóð voru það Eva Cederbalk, stjórnarformaður Arion banka, og Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, sem hringdu inn fyrstu viðskiptin hjá Nasdaq Stockholm.
Frumútboð Arion banka hófst þann 31. maí og lauk 14. júní. Niðurstöður útboðsins voru kynntar í morgun og má lesa um þær á vef útboðsins, www.arionbanki.is/IPO.