20. janúar 2017
Breytt kortatímabil
Í mars 2017 verður breyting á kreditkortatímabili okkar. Eftir breytinguna verða kortatímabilin frá 27. til 26. næsta mánaðar í stað 22. til 21. næsta mánaðar líkt og verið hefur.
Gjalddagi kreditkortareikninga verður óbreyttur, þ.e. annar dagur hvers mánaðar eða næsti virki dagur þar á eftir, lendi hann á frídegi.
Kortatímabilin í kringum breytinguna verða:
- 22. janúar til 21. febrúar – til greiðslu á gjalddaga 2. mars 2017
- 22. febrúar til 26. mars – til greiðslu á gjalddaga 3. apríl 2017
- 27. mars til 26. apríl – til greiðslu á gjalddaga 2. maí 2017