09. mars 2017
Opinn fundur HSÍ: Ný kynslóð - ný tækifæri
HSÍ fagnar 60 ára afmæli í ár og af því tilefni ætlar sambandið í samstarfi við Arion banka að boða til fundar þar sem farið verður yfir greiningu á leik landsliðsins á HM í Frakklandi, aðferðafræði íslenska kvennalandsliðsins og hvernig framtíð íslenskra landsliða í handbolta lítur út.
Fundurinn verður haldinn á morgun, föstudaginn 10. mars í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, og hefst klukkan 16:15.
Dagskrá
- HM í Frakklandi - Geir Sveinsson
- Norska leiðin - Axel Stefánsson
- Landsliðin til framtíðar - Viðar Halldórsson
- Unglingalandsliðin sumarið 2017 - Guðmundur B. Ólafsson
- 60 ára afmæli HSÍ - Guðmundur B. Ólafsson
Fundurinn er opinn öllum og verður sendur út í beinni útsendingu á Facebook síðu Arion banka.