Arion banki stækkar tvo flokka sértryggðra skuldabréfa

Arion banki stækkar tvo flokka sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í gær útboði á tveimur útistandandi flokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi.

Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 500.000.000 kr á ávöxtunarkröfunni 3,10% og verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 1.200.000.000 kr á ávöxtunarkröfunni 3,08%.
Heildareftirspurn í útboðinu var 3.260.000.000 kr.

Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs og hafa verið teknir til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi.

Arion banki nýtir sértryggð skuldabréf til fjármögnunar á íbúðalánum til einstaklinga. Arion banki veitir nú verðtryggð íbúðalán á 3,80% föstum vöxtum til fimm ára og 3,65% breytilegum vöxtum.