Arion banki fær alþjóðleg verðlaun fyrir byltingarkennda nýjung í stafrænni þjónustu

Arion banki fær alþjóðleg verðlaun fyrir byltingarkennda nýjung í stafrænni þjónustu

Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, við viðtöku verðlaunanna. - mynd
Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, við viðtöku verðlaunanna.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. - mynd
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.

Arion banki hlaut í gær verðlaun fagtímaritsins Retail Banker International fyrir byltingarkenndustu nýjung í bankaþjónustu á árinu (e. Most Disruptive Innovation of the Year). Verðlaunin voru veitt fyrir rafræn íbúðalán bankans en Arion banki býður upp á greiðslumat á aðeins örfáum mínútum og rafræn íbúðalán með þægilegri hætti en áður hefur þekkst.

Bankinn keppti við stór fjármálafyrirtæki á borð við Santander, Nordea og RBC en aðeins tveir bankar fengu fleiri tilnefningar. Verkefnin, sem Arion banki var tilnefndur fyrir, voru:

  • Rafrænt íbúðalánaferli í flokknum besta tækni gagnvart viðskiptavinum (e. Best Customer Facing Technology)
  • Greiðslumat á þremur mínútum í flokknum upplýsingatækninýjung ársins (e. Best IT Transformation)
  • Rafrænt íbúðalánaferli í flokknum byltingarkenndasta nýjung ársins (e. Most Disruptive Innovation of the Year)
  • Rafrænt íbúðalánaferli í flokknum besta umbreyting á þjónustu (e. Best Service Innovation)
  • Stafræn framtíð í flokknum besta umbreyting í upplýsingatækni (e. IT Innovation of the Year)

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Við í Arion banka erum stolt af þeirri miklu ánægju sem við höfum fundið meðal viðskiptavina okkar með þær stafrænu lausnir sem við bjóðum upp á, en það er líka ánægjulegt að fá viðurkenningu eins og þessa. Við höfum einsett okkur að vera í forystu í þessum efnum og mikið kapp hefur verið lagt á þróun stafrænna lausna innan bankans og við munum halda áfram á þeirri braut.


Skrá mig í viðskipti