05. september 2018
John Madden hættir í stjórn Arion banka
John Madden, framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi, hefur í dag sagt sig úr stjórn Arion banka.
Síðar í dag fer fram aukahluthafafundur bankans og er kjör nýs stjórnarmanns á dagskrá þar sem Benedikt Gíslason, fyrrverandi stjórnarmaður hjá Kaupþingi, er einn í framboði.