Arion banki breytir vöxtum
Í dag, mánudaginn 5. febrúar, taka eftirfarandi breytingar á inn- og útlánavöxtum Arion gildi.
Breytingarnar eru eftirfarandi:
Íbúðalán
- Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir lækka um 0,15 prósentustig og verða 9,45%
Innlán
- Verðtryggðir vextir framtíðarreikninga hækka um 0,6 prósentustig í 2,4%.
- Verðtryggðir vextir orlofsreikninga hækkar um 0,15 prósentustig í 0,4%.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.