Útibúið á Egilsstöðum opnar sýningu

Útibúið á Egilsstöðum opnar sýningu

Útibúið á Egilsstöðum opnar sýningu - mynd
Útibúið á Egilsstöðum opnar sýningu - mynd

Útibúið á Egilsstöðum hefur verið á Fagradalsbraut síðan 6. júlí 1970 en á nýju ári mun það flytja í annað húsnæði. Af þessu tilefni verður efnt til sýningar um sögu hússins og útibúsins.

Sýningin opnar á morgun, 25. nóvember, kl. 14.00 og eru allir hjartanlega velkomnir.

Sýndar verða gamlar vélar og ýmis áhugaverð gögn sem varðveist hafa í gegnum tíðina svo sem gamlar handskrifaðar bækur fyrir víxla og skuldabréf, dagmiðar, eyðublöð, tékka- og ávísanahefti. Seðlageymslan í kjallara hússins verður sýnd auk þess sem myndasýning verður í útibúinu með gömlum myndum frá starfseminni og úr byggðarlaginu.