Áhættuskýrsla Arion banka komin út

Áhættuskýrsla Arion banka komin út

Áhættuskýrsla bankans árið 2016 er komin út. Í skýrslunni er fjallað um helstu áhættuþætti Arion banka á ítarlegan hátt og er þar að finna greinargóðar upplýsingar um áhættu- og eiginfjárstýringu bankans. Auk þess er að finna upplýsingar um stjórnarskipulag bankans með tillit til áhættu sem og starfskjarastefnu bankans.

Markmiðið með skýrslunni er tvíþætt, annars vegar að veita upplýsingar til markaðsaðila og hins vegar að uppfylla lögbundnar kröfur um upplýsingagjöf. Í skýrslunni er að finna mikið af lykilupplýsingum sem gefa markaðsaðilum og fjárfestum yfirsýn og skilning á áhættustýringu bankans og eiginfjárstöðu hans.

Smellið hér til að kynna ykkur skýrsluna.