Reynsla Arion banka af birtingu upplýsinga um sjálfbærni

Reynsla Arion banka af birtingu upplýsinga um sjálfbærni

Frá vinstri: Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, Gná Guðjónsdóttir og Viktoría Valdimarsdóttir frá Klöppum, Evan Harvey frá Nasdaq og Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa. - myndFrá vinstri: Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, Gná Guðjónsdóttir og Viktoría Valdimarsdóttir frá Klöppum, Evan Harvey frá Nasdaq og Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa.

Á dögunum stóð Nasdaq kauphöllin á Íslandi fyrir morgunfundi á Hilton Reykjavik Nordica undir yfirskriftinni „Nýjar ESG leiðbeiningar Nasdaq Nordic - Fyrir heilbrigðara atvinnulíf og jörð“. Tilefni fundarins var að nýlega gáfu Nasdaq kauphallirnar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum út valfrjálsar leiðbeiningar um birtingu upplýsinga um umhverfismál, samfélagslega þætti og stjórnarhætti til stuðnings skráðum fyrirtækjum.

Sérstakur gestur á fundinum var Evan Harvey sem er stýrir alþjóðlegum verkefnum á sviði sjálfbærni hjá Nasdaq. Önnur erindi á fundinum fluttu Jón Ágúst Þorsteinsson, Gná Guðjónsdóttir og Viktoría Valdimarsdóttir, frá Klöppum og Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka.

Í erindi sínu fjallaði Haraldur Guðni um reynslu Arion banka af birtingu upplýsinga um sjálfbærni. Síðla árs 2016 var samþykkt ný stefna bankans um samfélagsábyrgð og í ársskýrslu bankans fyrir sama ár var ítarlega fjallað um umhverfisáhrif af starfsemi bankans og aðra ófjárhagslega mælikvarða.

Nánari upplýsingar um áherslur og árangur Arion banka á sviði sjálfbærni má finna í sérstakri umhverfisskýrslu og í kafla um ófjárhagslega mælikvarða í ársskýrslu bankans.