Aðalfundur Arion banka 2018

Aðalfundur Arion banka 2018

Aðalfundur Arion banka 2018 var haldinn í dag, fimmtudaginn 15. mars, í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem ársreikningur bankans var samþykktur. Breytingar voru samþykktar á launum stjórnar í samræmi við þróun launavísitölu sem fela í sér 6,8% hækkun á milli ára. Einnig var starfskjarastefna bankans samþykkt óbreytt frá fyrra ári. Ákveðið var að Deloitte ehf. gegni áfram hlutverki sínu sem endurskoðandi bankans í samræmi við ákvörðun aðalfundar 19. mars 2015. Samþykkt var að veita stjórn tímabundna heimild til útgáfu skuldabréfa sem mynda viðbótar eigin fjár þátt 1. 

Tillaga stjórnar um að greiða ekki út arð var samþykkt en stjórn bankans hefur víðtæka heimild til að leggja fram tillögu um arðgreiðslu eða aðra ráðstöfun eigin fjár og því mun stjórnin mögulega boða til aukahluthafafundar fram að næsta aðalfundi, þar sem tillaga um slíka ráðstöfun yrði lögð fyrir. Fram kom að stjórn Arion banka hafi tekið til ítarlegrar skoðunar þann möguleika að arðgreiðsla færi fram með hlutabréfum, þ.e. hlutabréfum í Valitor Holding, en að stjórnin væri þeirrar skoðunar að slíkt þarfnaðist ítarlegra mats.

Á fundinum voru eftirfarandi endurkjörnir í stjórn bankans: Brynjólfur Bjarnason, Eva Cederbalk, Jakob Már Ásmundsson, John P. Madden, Måns Höglund og Steinunn Kristín Þórðardóttir. Jafnframt var Herdís Dröfn Fjeldsted kjörin ný í stjórn bankans en Kirstín Th. Flygenring og Þóra Hallgrímsdóttir hætta í stjórninni. Steinunn er tilnefnd af Attestor Capital, aðrir eru tilnefndir af Kaupskilum.

Varamenn í stjórn bankans voru einnig endurkjörnir. Varamenn eru: Ólafur Örn Svansson, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir og Þórarinn Þorgeirsson.

Skýrsla stjórnar 2017

Eva Cederbalk, stjórnarformaður Arion banka, flutti skýrslu stjórnar. Eva ræddi breytingar á eignarhaldi bankans sem áttu sér stað á árinu 2017 og í upphafi árs 2018. Hún ræddi einnig að á árinu 2018 verða mögulega frekari breytingar á eignarhaldi bankans ef Kaupþing dregur frekar úr sínum hlut og að skráning bankans á markað, á Íslandi sem og erlendis, væri einn af þeim kostum sem í skoðun eru. Í máli hennar kom fram að þó Arion banki væri í dag eini af stóru bönkunum þremur hér á landi sem ekki væri í ríkiseigu þá væri það engu að síður svo að íslenska ríkið væri sá aðili sem fyrst og fremst myndi njóta góðs af sölu Kaupþings á hlutabréfum í Arion banka þar sem langstærstur hluti söluandvirðisins mun renna til ríkisins. Eva sagði stjórn og hluthafa Arion banka leggja mikla áherslu á að vanda til verka þegar kemur að frekari sölu á hlutum í bankanum. Hún sagði alla gera sér vel grein fyrir því að horft verður til reynslu Arion banka, með einkavæðingu annarra fjármálafyrirtækja í huga.

Eva ræddi að þrátt fyrir mikinn efnahagslegan bata á Íslandi hafi stjórnvöld viðhaldið séríslenskum sköttum sem settir voru þegar erfiðleikar landsins voru hvað mestir. Um sé að ræða afar íþyngjandi skatta sem skerða samkeppnisstöðu fjármálafyrirtækja og bitna á viðskiptavinum. Bankaskatturinn er 0,376% skattur á fjármögnun banka, en þar af eru innlán viðskiptavina stærsti hlutinn. Skatturinn torveldar bönkum samkeppni við þá erlendu banka sem bjóða stærstu fyrirtækjum landsins fjármögnun í erlendum myntum og samkeppni við lífeyrissjóði á íbúðalánamarkaði. Það er mikilvægt að mati Evu að íslensk stjórnvöld horfi til þess að endurskoða þessa skattheimtu sem á endanum bitnar á þeim kjörum sem bankar eins og Arion banki geta boðið sínum viðskiptavinum.

Eva ræddi einnig þær miklu breytingar sem eru að eiga sér stað á sviði fjármálaþjónustu um heim allan og lagði áherslu á að hver banki þurfi að gera upp við sig hvernig hann hyggst takast á við samkeppni úr nýjum áttum. Hún sagði að Arion banki hefði einsett sér að vera fremsti bankinn á Íslandi þegar kemur að nýjungum og stafrænum lausnum sem auðvelda viðskiptavinum bankans lífið. Á árinu 2017 kynnti bankinn tíu nýjar stafrænar lausnir, fleiri en nokkur annar íslenskur banki. Að hennar mati er forysta bankans á þessu sviði skýr og árangurinn eftir því, en hún sagði hans verða vart í aukinni ánægju viðskiptavina, aukinni eftirspurn eftir þjónustu bankans og aukinni skilvirkni.

Eva nefndi að á árinu 2017 hefði Arion banki gerst aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar. Með aðild sinni skuldbindur bankinn sig til að leggja áherslu á umhverfis- og samfélagsleg málefni auk góðra stjórnarhátta við mat á fjárfestingarkostum og við fjárfestingarákvarðanir.

Eva þakkaði stjórnendum og starfsfólki bankans fyrir þeirra framlag til árangurs og þróunar bankans.

Uppgjör Arion banka á árinu 2017

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, fór yfir uppgjör bankans á árinu 2017. Höskuldur sagði afkomu ársins 2017 vera viðunandi þótt einskiptisatburðir hafi sett nokkurn svip á árið. Hann sagði grunnrekstur bankans góðan, tekjugrunn sterkan og fjárhagslegan styrk mikinn. Afkoma ársins nam 14,4 milljörðum króna og arðsemi eigin fjár var 6,6%. Sá einskiptisatburður sem hafði hvað mest áhrif voru rekstrarerfiðleikar og gjaldþrot kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík, en niðurfærsla á lánum og fjárfestingu í félaginu nam um 4 milljörðum króna að teknu tilliti til skattaáhrifa. Eiginfjárhlutfall Arion banka í árslok var 24,0% en 26,7% í árslok 2016. Höskuldur sagði lækkun eiginfjárhlutfalls einkum tilkomna vegna 25 milljarða króna arðgreiðslu og kaupa á eigin bréfum. Þrátt fyrir lækkun er eiginfjárstaða bankans sterk að mati Höskuldar og vel umfram kröfur eftirlitsaðila. Höskuldur sagði ennfremur að lækkun eiginfjár væri í samræmi við markmið bankans um að haga eiginfjárhlutfalli sínu á þann veg að það verði meira í samræmi við erlenda og innlenda banka.

Höskuldur sagði Arion banka, líkt og viðskiptavini bankans, njóta þess að starfa í þróttmiklu efnahagslífi. Markmið bankans væri að lánavöxtur væri almennt umfram vöxt í efnahagslífinu og sú varð raunin á árinu 2017 en heildarlán til viðskiptavina jukust um rúm 7% á árinu. Lán til fyrirtækja jukust um tæp 7% en lán til einstaklinga um rúm 8%. Höskuldur sagði gott jafnvægi vera á milli lána til einstaklinga og fyrirtækja í lánabók bankans. Hann sagði gæði lánabókar bankans aukast jafnt og þétt og í árslok 2017 var hlutfall vandræðalána aðeins 1,0%.

Höskuldur fjallaði einnig um nýjar stafrænar lausnir Arion banka og telur hann bankann hafa tekið nokkuð afgerandi forystu þegar kemur að framsæknum nýjungum í viðskiptabankaþjónustu. Máli sínu til stuðnings vísaði hann m.a. í nýja könnun sem sýnir að 36% aðspurðra telja Arion banka vera fremsta bankann á Íslandi þegar kemur að stafrænum lausnum. Sá banki sem kom næstur var aðeins nefndur af tæplega 25% aðspurðra. Höskuldur nefndi einnig að sú lausn sem hefur vakið einna mesta athygli og ánægju meðal viðskiptavina væri stafrænt greiðslumat og umsóknarferli fyrir íbúðalán sem er mun þægilegra og fljótlegra en áður. Markaðshlutdeild bankans þegar kemur að nýjum íbúðalánum jókst umtalsvert á árinu þrátt fyrir harða samkeppni á þeim markaði og er það fyrst og fremst vinsældum þessara nýju og þægilegu lausna að þakka. Höskuldur sagði íbúðalánamarkaðinn skipta bankann miklu en íbúðalán nema rétt rúmlega 40% af lánasafni bankans.

Höskuldur kom einnig inn á þær breytingar sem hafa átt sér stað á hluthafahópi Arion banka. Að hans mati er það jákvætt að hlutahafahópurinn þróist, verði breiðari og að innlendir aðilar hafi bæst við hluthafahópinn. Fjárfesting nýrra hluthafa sýni trú á því starfi sem fari fram innan bankans og þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað.

Höskuldur sagði horfur fram á veg vera góðar, bæði fyrir bankann og fyrir íslenskt efnahagslíf. Hann þakkaði viðskiptavinum bankans fyrir samstarfið sem og starfsfólki fyrir þeirra mikilvæga þátt í árangri bankans á árinu.

Ræða stjórnarformanns Arion banka

Ársskýrsla Arion banka 2017