10. maí 2021
Útibú Arion banka á Sauðárkróki verður lokað út þessa viku
Ástæða lokunarinnar er fjölgun COVID-19 smita á svæðinu. Lögreglan hefur biðlað til fyrirtækja og stofnana á svæðinu að hafa lokað þessa viku á meðan unnið er úr rakningu og greiningu.
Hægt er að hafa samband við starfsfólk útibúsins í gegnum síma, 444-7000, tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is, og fjarfundi næstu daga.
Jafnframt eru þrír hraðbankar á svæðinu: í Skagfirðingabúð, í Varmahlíð og á Hofsósi.