30. janúar 2026
Ný og spennandi byggð í Blikastaðalandi
Ný og spennandi byggð í Blikastaðalandi er nú í fyrsta deiliskipulagsáfanga. Gert er ráð fyrir allt að 1260 íbúðum auk þjónustu, grunn- og leikskóla.
Áhersla er lögð á samspil byggðar og náttúru, blágrænar ofanvatnslausnir og hönnun sem styrkir lífsgæði íbúa og nærumhverfi.
Blikastaðaland er í eigu Arion banka í gegnum félagið Blikastaðaland ehf. og er skipulagt í nánu samstarfi við Mosfellsbæ. Samkomulag við Mosfellsbæ felur í sér að Blikastaðaland ehf. taki þátt í uppbyggingu innviða svæðisins.