Skertur opnunartími vegna veðurs
Útibú Arion banka á höfuðborgarsvæðinu og Suður- og Vesturlandi verða lokuð til a.m.k. klukkan 12:00 föstudaginn 14. febrúar þar sem Veðurstofan hefur gefið út rauða og appelsínugula viðvörun sem tekur gildi í nótt og verður í gildi fram eftir föstudeginum. Útibú á Norður- og Austurlandi verða opin eins og venjulega.
Viðskiptavinum er bent á Arion banka appið og netbankann þar sem hægt er að framkvæma allar helstu aðgerðir.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Uppfært: Útibúið á Kirkjubæjarklaustri verður lokað í dag föstudaginn 14. febrúar.