Arion banki er einn af aðalbakhjörlum Hörpu

Arion banki er einn af aðalbakhjörlum Hörpu

Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs Arion banka, Jón Gunnar Björnsson, innkaupastjóri bankans og Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu, undirrituðu samninginn sem gildir til tveggja ára.  - myndRakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs Arion banka, Jón Gunnar Björnsson, innkaupastjóri bankans og Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu, undirrituðu samninginn sem gildir til tveggja ára.

Arion banki og tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa hafa gert með sér samkomulag þess efnis að bankinn verði áfram einn af aðalbakhjörlum Hörpu. Markmið samstarfssamningsins er að styrkja menningar- og tónlistarstarf á Íslandi, kynna fjölbreytta starfsemi Hörpu fyrir almenningi og upplýsa viðskiptavini Arion banka sérstaklega um listviðburði á þessum vettvangi.

Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs Arion banka:
„Harpa þjónar mikilvægu hlutverki sem einn af burðarásum í íslensku menningarlífi. Það er okkur ánægjuefni að styðja við það merka og metnaðarfulla starf sem þar fer fram.“ 

Myndin: Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs Arion banka, Jón Gunnar Björnsson, innkaupastjóri bankans og Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu, undirrituðu samninginn sem gildir til tveggja ára.