Yfirlit yfir helstu breytingar á skilmálum Arion banka
Nýverið sendum við viðskiptavinum okkar uppfærða viðskiptaskilmála. Þar sem um óvenju miklar breytingar er að ræða hefði farið betur á því að láta yfirlit yfir helstu breytingar fylgja nýju skilmálunum. Það láðist okkur að gera en nú höfum við tekið saman greinargott yfirlit yfir helstu breytingar.
Nýir skilmálar taka gildi 18. janúar 2025 fyrir núverandi viðskiptavini en strax fyrir nýja viðskiptavini. Við hvetjum alla til að kynna sér skilmálana vel.
Í stuttu máli má segja að stærsti hluti breytinganna sé tilkominn vegna breytinga í íslensku lagaumhverfi og sístækkandi hlutverks stafrænnar þjónustu. Þá eru sumar breytingarnar tilkomnar vegna öryggisráðstafanna af okkar hálfu í ljósi fjölgunar svikamála.
Yfirlit yfir helstu breytingar á skilmálum Arion banka