Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Nordic Visitor á ferðaskrifstofunni Terra Nova Sól
Samið var um kaup Nordic Visitor hf. á ferðaskrifstofunni Terra Nova Sól hf. 19. desember síðastliðinn.
Terra Nova Sól var hluti af TravelCo sem var stofnað í kjölfar gjaldþrots PrimeraAir og Arion banki tók yfir í júní 2019. Kaupin voru annars vegar með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem nú liggur fyrir og hins vegar áreiðanleikakönnun sem er lokið. Fyrirvarar kaupsamningsins eru því uppfylltir.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi seljanda og fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance var ráðgjafi kaupanda.