Arion banki styrkir Hjálparstarf kirkjunnar, Rauða kross Íslands og Mæðrastyrksnefndir víðsvegar um landið

Arion banki styrkir Hjálparstarf kirkjunnar, Rauða kross Íslands og Mæðrastyrksnefndir víðsvegar um landið

Svava H. Friðgeirsdóttir, skjalastjóri Arion banka, afhendir Aðalheiði Frantzdóttir, framkvæmdastjóra Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, styrkinn og jólagjafir frá starfsfólki bankans. - myndSvava H. Friðgeirsdóttir, skjalastjóri Arion banka, afhendir Aðalheiði Frantzdóttir, framkvæmdastjóra Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, styrkinn og jólagjafir frá starfsfólki bankans.

Eins og undanfarin ár þá styrkti Arion banki Hjálparstarf kirkjunnar, Rauða kross Íslands og Mæðrastyrksnefndir um sex milljónir króna í tilefni jólaúthlutunar þeirra í desember síðastliðnum.

Hverju félagi um sig var veittur styrkur að upphæð tvær milljónir króna, en í tilfelli Mæðrastyrksnefndar þá dreifist upphæðin á nefndir víðsvegar um landið Einnig gaf starfsfólk bankans jólagjafir til styrktar Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur.