Fjöldi gesta sótti lokadag Startup Energy Reykjavík
Lokadagur viðskiptahraðalsins Startup Energy Reykjavík fór fram föstudaginn 18. nóvember í höfuðstöðvum Arion banka. Startup Energy Reykjavík er viðskiptahraðall Arion banka fyrir orkutengd sprotafyrirtæki.
Lokadagurinn markar kaflaskil fyrir þau fyrirtæki sem tóku þátt í Startup Energy Reykjavík. Á lokadeginum var fjárfestum og öðrum gestum boðið að kynnast verkefnum fyrirtækjanna sem tóku þátt í ár. Markmið Startup Energy Reykjavík er að skapa umgjörð þar sem athafnafólk nýtur ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr vör nýjum orkutengdum viðskiptatækifærum. Er þetta í þriðja sinn sem slíkur dagur er haldinn. Sjö fyrirtæki taka þátt í Startup Energy Reykjavík hverju sinni og stendur verkefnið yfir í tíu vikur. Fyrirtækin fá sameiginlega skrifstofuaðstöðu, aðstoð og leiðbeiningar frá tugum mentora auk þess sem bakhjarlar verkefnisins leggja hverju og einu fyrirtæki til 5 milljónir í hlutafé gegn 10% eignarhlut.
Áður en teymin sjö, sem unnið hafa að sínum viðskiptahugmyndum í allt haust, kynntu sig, tóku til máls Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka; Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra nýsköpunar; Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, fjármálastjóri Carbon Recycling International.
Bakhjarlar verkefnisins eru Arion banki, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð og GEORG – Rannsóknarklasi í jarðvarma. Icelandic Startups og Iceland Geothermal sjá um framkvæmd verkefnisins.
Fyrirtækin sem í ár voru valin til þátttöku í Startup Energy Reykjavík eru:
Arctic Sea MineralsSaltframleiðsla sem skilar afurð sem er betri fyrir heilsuna og inniheldur minna sódíum. |
ELF TechÞróar áfram tækni sem gerir mögulegt að skyggnast undir yfirborð jarðar og hlusta á norðurljósin. |
Health SnacksFramleiðir nýstárlegt snarl úr fiskroði. |
ÍskristallarVinna að því að koma á markað próteinum sem hafa þann eiginleika að draga úr ískristalla myndun í matvælum, sem leiðir til mun lengra geymsluþols matvæla í frystingu. |
AtmoniaFramleiðir ammoníak til áburðarframleiðslu með sjálfbærum hætti. |
MýsköpunFjölnýting jarðvarma við ræktun og hagnýtingu þörunga úr Mývatni. |
ZetoHefur þróað og prófað lífræna sápu- og húðvörulínu þar sem þaraþykkni er notað í stað vatns, án fylliefna og kemískra aukaefna. |