Áhugaverð ráðstefna um sáttamiðlun í viðskiptalífinu

Áhugaverð ráðstefna um sáttamiðlun í viðskiptalífinu

Áhugaverð ráðstefna um sáttamiðlun í viðskiptalífinu - mynd

Á morgun, föstudaginn 13. nóvember, mun Douglas Frenkel sáttamiðlari og prófessor við háskólann í Pennsylvaníu, vera með erindi um sáttamiðlun í viðskiptalífinu í höfuðstöðvum Arion banka. Tilefnið er 10 ára afmælisráðstefna Sáttar, félags sáttamanna, en ráðstefnan verður haldin frá kl.15.00-16.30 og eru allir velkomnir. Skráning fer fram hér.

Frenkel er höfundur bókarinnar The Practice and Mediation og hefur unnið brautryðjendastarf á sviði sáttamiðlunar í Ameríku. Auk Frenkel mun Elmar Hallgríms Hallgrímsson, formaður Sáttar, vera með erindi en hann er lektor við Háskóla Íslands þar sem hann kennir meðal annars sáttamiðlun. Elmar var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun og sagði frá því hvað felst í sáttamiðlun og hvernig megi nýta þá leið í ágreiningsmálum. Hér má hlusta á viðtalið í heild sinni.

Mannauðsstjórar, lögfræðingar, nemendur og aðrir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.