Á þitt fyrirtæki heima í Startup Reykjavik – kynningarfundur 21. febrúar
Startup Reykjavik hefur fyrir löngu sannað gildi sitt þegar kemur að víðtækum stuðningi við frumkvöðlafyrirtæki. Umsóknarfrestur í viðskiptahraðalinn fyrir starfsárið 2019 rennur út þann 27. mars næstkomandi. Á fundinum verður farið yfir fyrirkomulagið í Startup Reykjavik og stuðning á meðan hraðallinn stendur yfir og í kjölfar hans. Að auki verður fjallað um fjármögnun fyrirtækja og hvernig viðskiptahraðlar get stytt leiðina að fjármögnun.
Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni 19, kl. 12-13. Boðið verður upp á léttar veitingar í hádeginu.
Dagskrá fundarins
Edda Konráðsdóttir – verkefnastjóri hjá Icelandic Startups
- Fyrirkomulag Startup Reykjavik
- Af hverju að sækja um?
- Eftir hvernig fyrirtækjum er leitað?
Einar G. Guðmundsson – Arion banka og framkvæmdastjóri Startup Reykjavik Invest ehf.
- Árangur Startup Reykjavik fyrirtækja
- Fjárfestingar í sprotafyrirtækjum
- Fjármögnun sprotafyrirtækja
Haraldur Hugosson, COO - Genki instruments
Haraldur er COO hjá Genki instruments, sem er tæknifyrirtæki þar sem verkfræði, hönnun og tónlist renna saman í eitt. Genki instruments tók þátt í Startup Reykjavik 2015 en fyrirtækið hefur aflað fjár hjá englafjárfestum, staðið fyrir vel lukkaðri hópfjármögnunarherferð á Indiegogo og fengið styrki, í heildina um 75 milljónir. Haraldur mun deila fjármögnunarvegferð fyrirtækisins á fundinum.
Facebook síða Startup Reykjavík
|
Edda Konráðsdóttir |
Einar G. Guðmundsson |
Haraldur Hugosson |