Arion banki og Vörður tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna
Samtök vefiðnaðarins (SVEF) standa á ári hverju að Íslensku vefverðlaununum. Í ár er Vörður tilnefndur í tveimur flokkum og Arion banki einum. Rafræni ráðgjafi Varðar er annars vegar tilnefndur sem besta stafræna lausnin og hins vegar sem besta vefkerfið. Arion banka appið er tilnefnt sem besta appið.
Samtök vefiðnaðarins eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi. Samtökin hafa það að markmiði að miðla þekkingu og efla fagleg vinnubrögð í greininni, vera samræðuvettvangur félagsmanna og andlit stéttarinnar út á við.
Sigurvegarar verða tilkynntir þann 11. mars kl. 19:30 í beinni útsendingu á Vísi.