Gríðarmikill áhugi á fjárfestingarkeppnum framhaldsskólanna og háskólanna

Gríðarmikill áhugi á fjárfestingarkeppnum framhaldsskólanna og háskólanna

Efri röð frá vinstri: Alexander Sigurðarson, Ingvar Atli, Vilhjálmur Geirsson og Daníel Árnason. Neðri röð frá vinstri: Magnús Benediktsson, Óliver Orri Bergmann, Pétur Rúnarsson, Alexander Jónsson og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Markaða hjá Arion banka. - myndEfri röð frá vinstri: Alexander Sigurðarson, Ingvar Atli, Vilhjálmur Geirsson og Daníel Árnason. Neðri röð frá vinstri: Magnús Benediktsson, Óliver Orri Bergmann, Pétur Rúnarsson, Alexander Jónsson og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Markaða hjá Arion banka.

Í október héldum við tvær fjárfestingarkeppnir, annars vegar fyrir framhaldsskólanema og hins vegar háskólanema. Samtals tóku hátt í 1000 nemendur þátt í keppnunum. Kynjahlutföllin voru 27% konur og 72% karlar.

Sigurvegari háskólakeppninnar ávaxtaði sína upphæð, samtals tíu milljónir króna, um rúmar þrjár milljónir króna á þeim mánuði sem keppnin stóð yfir. Keypti hann meðal annars í hlutafélögunum Amaroq Ltd, Alvotech, Hampiðjunni og Festi.

Sigurvegari framhaldsskólakeppninnar ávaxtaði upphæðina sína um rúmar 1,6 milljónir. Þar skilaði Oculus Holdings AG honum sigrinum - en hann tók sénsinn og setti alla upphæðina sína á það félag.

Háskólakeppni - sigurvegarar:
  1. Alexander Jónsson (HR)
  2. Daniel Árnason (HR)
  3. Ingvar Atli (HÍ)

Frá vinstri: Alexander Sigurðarson, einn af eigendum Dyngju, Magnús Benediktsson, einn af eigendum Dyngju, Daníel Árnason 2.sæti, Alexander Jónsson 1.sæti, Ingvar Atli 3.sæti og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Markaða hjá Arion banka.

Framhaldsskólakeppni - sigurvegarar:
  1. Pétur Rúnarsson (Flensborg)
  2. Óliver Orri Bergmann (Verzló)
  3. Vilhjálmur Geirsson (Verzló)

Frá vinstri: Óliver Orri Bergmann 2.sæti, Pétur Rúnarsson 1.sæti, Vilhjálmur Geirsson 3. sæti og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Markaða hjá Arion banka.