Reitun breytir horfum lánshæfis Arion banka úr stöðugum í jákvæðar
Reitun hefur gefið út nýtt lánshæfismat fyrir Arion banka og sértryggð skuldabréf bankans. Mat Reitunar á lánshæfi bankans er áfram i.A2 en Reitun breytir horfum úr stöðugum í jákvæðar. Lánshæfismat sértryggða skuldabréfa bankans er óbreytt og hafa skuldabréfin áfram hæstu mögulegu einkunn eða i.AAA með stöðugum horfum.
Í greiningu Reitunar kemur fram að meginástæður þess að horfum er breytt úr stöðugum í jákvæðar séu þau stóru skref sem stjórnvöld hafi tekið í uppgjöri búa fallinna fjármálafyrirtækja á grundvelli stöðugleikaskilyrða og losun fjármagnshafta. Einnig hafi Arion banki nýtt vel þann góða meðbyr sem verið hefur í íslensku efnahagslífi til að byggja upp traustan og vel rekinn banka.
Jafnframt kemur fram í greiningu Reitunar að losun fjármagnshafta muni hafa áhrif á lánshæfi bankans og þróun þess.