Fyrirtækið Dyngja var valið fyrirtæki ársins 2020 í keppni Ungra frumkvöðla
Fyrirtækið Dyngja, sem er í eigu nemenda við Verslunarskóla Íslands, var valið fyrirtæki ársins 2020 í samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi sem fram fór í síðustu viku. Fyrirtækið mun keppa fyrir hönd Íslands í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fram fer í Cascais í Portúgal dagana 22.-24. júlí 2020. Vegna COVID-19 ástandsins verður keppnin haldin með óhefðbundnu sniði í ár og fer fram með rafrænum hætti.
Tuttugu og fimm fyrirtæki frá fimmtán framhaldsskólum voru valin úr hópi 109 fyrirtækja til að taka þátt í úrslitum Ungra frumkvöðla 2020.
Eftirfarandi fyrirtæki hlutu verðlaun:
- Fyrirtæki ársins 2020: Dyngja - Verslunarskóli Íslands
- Fyrirtæki ársins - 2. sæti: Piskís - Verslunarskóli Íslands
- Fyrirtæki ársins - 3. sæti: Draumaljós - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
- Mesta nýsköpunin: Skín - Kvennaskólinn í Reykjavík
- Besta fjármálalausnin: Dyngja - Verslunarskóli Íslands
- Besti Sjó-Bisnessinn: Hulur - Borgarholtsskóli
- Samfélagsleg nýsköpun: Rætur - Verslunarskóli Íslands
- Besta hönnunin: Kusari - Menntaskólinn við Sund
- Besta tæknilausnin: iQroll - Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
- Umhverfisvænasta lausnin: Vösk - Verslunarskóli Íslands
- Bestu markaðsmálin: Koley - Menntaskólinn við Sund
- Besta matvælafyrirtækið: MYSEY - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Arion banki er einn af aðalbakhjörlum Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Samtökin hafa það hlutverk að búa ungt fólk undir framtíðina og auka færni þess til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamenntun í framhaldsskólum. Þannig er frumkvöðlastarf kynnt fyrir framhaldsskólanemum með það að markmiði að efla frumkvöðlaanda meðal ungmenna og þjálfa frumkvöðla framtíðarinnar.